![]() |
|
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
|
|
10. nóvember 2003 Öl í krús..... Það var vel lukkuð samkoma sem haldin var á Café Victor um daginn. Þar mættu rúmlega 20 stúdentar '78 ásamt fylgifiskum, og einnig tvær dömur sem voru í árgangnum en náðu ekki að klára (Elsa í F-inu og Lára í A-inu). Svo verður auðvitað að geta þess að þegar við fórum að syngja Emmu við hljómfagran undirleik Hafþórs þá birtust tvær ungar stúlkur af neðri hæðinni sem heilluðust svo af söngnum að þær vildu endilega fá að vera með í fjörinu. Þær sungu með um hríð en hafa svo sennilega áttað sig á því (þegar fólk setti upp gleraugun til að lesa textann að Emmu) að samkvæmisgestir væru nokkuð við aldur (svona eins og við hefðum álpast inn á KEA-barinn í staðinn fyrir Sjallann hér í den) - og létu sig hverfa. En þeir hörðustu úr okkar hópi héldu áfram á Vínbarnum eftir að Viktor var yfirgefinn, og ég á nokkrar myndir þaðan sem ég ætla að nota næst þegar mig vantar pening. Myndir já - ég var víst búin að lofa myndum úr samkvæminu hérna á vefinn. Það verður því miður nokkur dráttur á því, allt of mikið að gera í vinnu og námi og svo datt ADSL-tengingin auðvitað út þegar síst skyldi. En þær koma einhvern tíma á næstunni. Þegar ég er búin að fara til Akureyrar að halda uppá 25 ára afmæli saumaklúbbsins, en það stendur fyrir dyrum um næstu helgi. Þar verða ellefu fyrrverandi MA-meyjar samankomnar. Heimavistarpíur allt saman. Ætli við fáum okkur ekki Blue Nun (kælt í vaskinum) svona uppá nostalgíuna, rifjum allavega upp "væmið hvítvín og vonlausar ástir" eins og Óðinn orðaði það svo snilldarlega í ræðunni sinni. Það var nóg af hvoru tveggja. Einkennisbúningurinn: brúnar útvíðar terlínbuxur (svokallaðar Sjallabuxur, hægt að geyma litla flösku í sokknum innanundir), rúllukragabolur og hárgreiðsla einsog mamman í That 70's Show. Ef þið sjáið svona klæddar konur á ferli á Akureyri um næstu helgi - þá erum það við. "Ég er á leiðinni, alltaf á leiðinni....." Svo er líka von á myndum frá Sibbu síðan á hátíðahöldunum í sumar, í næstu viku eða þar um bil (þarf að skanna þær inn).
|
|
|
29. október 2003 Þið munið að við ætlum að hittast á Café Victor á laugardagskvöldið. Endilega komið með myndir frá afmælinu ef þið eigið, t.d. stafrænar á geisladisk, nú eða bara venjulegar sem hægt er að skanna, til að hægt sé að bæta við í myndasafnið hér á síðunni. Hér er myndin sem Jóhanna sendi. Fleiri svona!!
|
|
![]() Öl í krús, öl í dós, ..... (hvað kemur til að Erla er ekki með Thule?)
|
|
|
28. september 2003 Eins og þið hafið væntanlega fengið póst um þá eru blessaðir drengirnir Nonni Vald, Óðinn og Árni Finns búnir að boða til samkomu á Café Victor, efri hæð, laugardagskvöldið 1. nóvember kl. 20. Engin dagskrá, en það má auðvitað alltaf syngja Emmu. Þarna gefst ágætt tækifæri til að halda áfram í nostalgíunni síðan í sumar og fara að plana næsta stórafmæli. Þau sem ekki komust norður í júní eru að sjálfsögðu hvött til að mæta, sem og öll hin. Sjáumst 1. nóvember!
|
|
|
14. september 2003 Jæja ..... þetta varð aðeins lengri pása en til stóð, af ýmsum ástæðum. En vefsíðan er hreint ekki dauð, það verður haldið áfram að setja hér inn efni meðan eitthvað berst. Það eina sem hefur borist síðan síðast eru nokkrar myndir úr albúmi Sigurjóns heitins, sem Sigríður ekkja hans kom á framfæri við okkur. Ég er samt ekki úrkula vonar um að fleiri myndir frá afmælinu eigi eftir að berast, og skora á þá sem luma á myndum að hafa samband við mig. Einar Björns hafði samband og var með hugmynd um 30 ára afmælið (það er ekki ráð nema í tíma sé tekið!), sem var að efna í hópferð til Barcelona vorið 2008. Þessari hugmynd er hér með komið á framfæri, svo að fólk geti strax stofnað reikning og byrjað að safna. Árgangurinn 1973 fór til Barcelona í sumar, undir styrkri fararstjórn Kristins R. Ólafssonar bekkjarbróður síns, og var víst mikið geim. Það væri ekki galið að gera eitthvað svipað eftir fimm ár. Persónulega langar mig að vísu meira til Dubrovnik, eins og stóð til að fara í skólaferðalag hér um árið (sérstaklega fyrst að Hótel Esja er ekki lengur til). En það væri gaman að heyra skoðun annarra á þessari tillögu Einars. Og munið: Senda myndir!!!
|
|
|
9. júlí 2003 Nú er búið að setja lokapunktinn aftan við okkar frábæru hátíðahöld, með afhendingu gjafar til barna Sigurjóns heitins bekkjarbróður okkar. Þið 25 ára stúdentar eigið að hafa fengið tölvupóst þar sem sagt er frá afhendingunni, sem Gulló og Óli Ævars sáu um fyrir okkar hönd. Fjölskylda Sigurjóns varð bæði hissa, hrærð og glöð yfir þessari óvæntu gjöf. Það er sérlega ánægjulegt hversu vel tókst til með hátíðahöldin, svo að hægt var að hafa gjöfina rausnarlega. Vefstjóri er að fara í sumarfrí og ætlar að heiðra frændur okkar Dani og Svía með nærveru sinni næstu vikurnar (m.a. ganga á Himmelbjerget), þannig að það gerist ekkert á þessari vefsíðu fyrr en í fyrsta lagi um mánaðamótin. Ég er enn að gera mér vonir um að fá fleiri myndir til að birta - lýsi hér með enn og aftur eftir myndum! Það má alveg senda myndir þótt ég sé í fríi, ég hef þá eitthvað að gera þegar ég kem aftur (með púrtvínið úr tollinum.....). Hej så længe!
|
|
|
3. júlí 2003 Nefndin fundaði í fyrrakvöld. Það er víst ekki hægt að kalla hana undirbúningsnefnd lengur. Nema þá fyrir næsta afmæli, sem maður er strax farinn að hlakka til. Það vill til að árin líða miklu hraðar nú orðið en þau gerðu, svo það er ekkert svo langt í 30 ára afmælið. Við erum auðvitað öll í skýjunum yfir því hversu vel tókst til með allt saman, og ekki síður með það hversu góður rekstrarafgangur varð af hátíðinni (meira um það seinna). Enda var mætingin frábær. Okkur kom saman um að það sem einkenndi þessa samveru okkar fyrir norðan væri samkenndin, gleðin og væntumþykjan sem við upplifðum. Fólk sem kannski þekktist varla meðan við vorum í skólanum heilsaðist núna með faðmlögum og kossum. Jafnvel dag eftir dag. Meira að segja hefur frést af bekkjarsystkinum sem hittust á virðulegum fundi hjá Útflutningsráði nokkrum dögum eftir afmælið og gátu ekki stillt sig um að kyssast..... Svo kom fram tillaga um að reyna að hittast áður en kemur að 30 ára afmælinu. Kannski verður hóað saman í eitthvert óformlegt húllumhæ jafnvel strax í vetur. Við viljum eiginlega ekki hætta! Það eru nýjar myndir frá Gulló úr fjallgöngu, bekkjarpartýi og óvissuferð á viðkomandi síðum. Eins er von á myndum frá Þórunni og kannski fleirum.
|
|
|
29. júní 2003 Engar nýjar myndir núna. Af þeirri einföldu ástæðu að mig vantar fleiri myndir til að birta. T.d. úr undanpartýjum A-, T- og U-bekkja, sem og öðrum undanpartýjum, myndir af Hver, myndir af sjónhverfingamanninum Magic Axfjörð, gjarnan líka myndir af öðrum skemmtiatriðum, fleiri myndir frá hátíðinni. Endilega sendið mér slíkar myndir ef þið eigið. Nokkrar nýjar tilvitnanir eru á afmælissíðunni. Önnur skilaboð frá Friðjóni:
"Eins og alþjóð hlýtur að vita tapaði Ásrún kona Friðjóns forláta
gleraugum á afmælisfagnaðinum 16. júní, hún hafði lagt þau frá sér og fann
þau svo ekki aftur þegar til átti að taka (líklega af því að hún var ekki
með gleraugun!). En svo skemmtilega vill til að umrædd gleraugu eru komin
í leitirnar og viljum við hjónin þakka öllum þeim fjölda sem tók þátt í
leitinni af alúð og árvekni og sérstakar þakkir fær Jóhanna Gísla en hún
sýndi fádæma þrautseigju og árangur við leitina."
Nú geta þau hjónin sem sé sungið Emmu í rúminu á kvöldin og ber að fagna því. Eftirminnilegt tilsvar: Palli ljósmyndari var að stilla upp fyrir myndatökuna í Stefánslundi fyrir óvissuferðina. Einhverjir vildu skapa sér meira pláss og báðu Leif að færa sig til hliðar. Gall þá í Friðjóni: "Látiði Leif vera, það er nýbúið að raða honum."
|
|
|
26. júní 2003
Fann heimasíðu 15 ára stúdenta hér (sjá einnig tenglasíðuna). Á vef MA er mikið af myndum af nýstúdentum (smellið á Tækifærismyndir). Eftirminnileg orðaskipti: (Setið þröngt við
myndatöku á skólavörðunni 14. júní.)
|
|
|
24. júní 2003 Þessi ekkisens vinna er alltaf að tefja fyrir manni. Að maður tali nú ekki um fjölskylduna..... Það gengur voða hægt að koma meira efni inn á vefinn. En það eru komnar nokkrar myndir úr undan-partýi X-bekkjarins þann 16. og vonandi fæ ég myndir úr fleiri undanpartýjum. Lýsi hér með eftir þeim. Svo á ég eftir að skanna inn fullt af myndum frá hátíðinni sjálfri, vonast til að komast í það næstu daga. Hér er ræða Sibbu við útskriftina þann 17. júní komin á vefinn. Fór með myndir og Carmínu í saumaklúbb, þar eru þrjár úr árgangi 1977. Þeim þótti okkar árgangur (sérstaklega þó strákarnir) hafa að meðaltali elst mun verr en þeirra árgangur. Ja, hverjum þykir sinn fugl fagur, segi ég nú bara (hef nefnilega séð myndir frá þeirra afmæli í fyrra). Mér finnst okkar strákar eiginlega ekkert hafa elst. Sumir hafa meira að segja fríkkað á þessum 25 árum..... Ég heyrði einhvern kvarta yfir því um daginn að gamla stúdentshúfan hans væri orðin of lítil. Þetta er auðvitað af því að auknar gáfur og þekking taka sitt pláss svo að hausinn þenst út. Liggur í augum uppi!
|
|
|
21. júní 2003 Vefstjóri biðst afsökunar á að hafa ekki gert neitt í gær (ég veit þið bíðið spennt eftir fleiri myndum), en það þurfti að halda uppá 10 ára afmæli yngstu dótturinnar. Blessað barnið átti afmæli 12. júní en lenti bara ekki ofar í forgangsröðinni en þetta. Ég er að hugsa um að senda hana í MA svo við getum júbílerað saman seinna meir. Nú eru komnar myndir frá hlöðuballinu í Vogafjósinu, sem og fleiri myndir úr óvissuferðinni. Alfreð sendi helling af myndum. Reynslunni ríkari bið ég ykkur nú að þjappa myndum í zip-skrá áður en þið sendið þær, eða brenna þær á geisladisk og senda mér í pósti. Andsk.... ADSL-tengingin mín er nefnilega ennþá biluð, svo það kostaði útkall tölvusérfræðings að sækja allar myndirnar hans Fredda. Svoleiðis sérfræðingar kosta nú yfirleitt sitt, en það vill til að þessi sem ég hef afnot af er billegur svo að sjóðurinn okkar mun ekki skaðast af þessu.....
Hér eru svo skilaboð frá Friðjóni:
"Svo kannast ég ekki við neina spilagaldra en hins vegar hefur einhver af glettni gert þann galdur að láta gleraugu (í blárri umgjörð) konu minnar hverfa af borði veislustjórnar um það leyti sem Emma var kyrjuð á dansgólfinu. Ef einhver kannast við það væri fallegt af viðkomandi að láta okkur vita. Konan mín er hálfgagnslaus svona gleraugnalaus því nú þarf ég að lesa fyrir hana í rúminu á síðkvöldum af því að mín gleraugu eru ekki týnd. Ég hef reyndar aðrar hugmyndir um samskipti hjóna í rúminu á kvöldin, t.d. að syngja Emmu og hún þarf jú gleraugu til að sjá textann! Þetta eru ekki svona "bensínstöðvagleraugu" heldur tvískipt og svo góð að hennar sögn að þau hljóta að vera dönsk."
|
|
|
19. júní 2003 Nýjar myndir úr óvissuferðinni. Meira seinna. Vegna fyrirspurna um vefsíðugerðina: Forritið sem notað er er FrontPage, fyrirsagnir, myndir og útlit er unnið í PaintShopPro, en púrtvínið er af ýmsum sortum - Cockburns, Croft, Taylor, jafnvel Hunts (leading the field).
|
|
|
18. júní 2003 Það er rétt núna sem maður er búinn að meðtaka viðburði þessara síðustu daga. Hápunktarnir eru margir en mig langar að nefna tvo:
Nonni Vald sendi eftirfarandi og bað um
að það væri birt:
Ötulu liði í undirbúningsnefndinni, Óda fyrir ræðuna, Haffa fyrir Emmu og
HVER fyrir spiliríið. Hverju og einu ykkar allra sem ég hitti og gerðu
þetta svo skemmtilegt að ég er enn uppnuminn eftir dýrðardagana okkar
fyrir norðan. Hefði bara ekki trúað því að það yrði svona gaman að hitta
ykkur öll, rifja upp gömul kynni, rifja upp gamlar sögur, dansa og dansa,
synda með Einari Björns og Jóhönnu í leyfisleysi og banni. Vera í partýi
fram á morgun hjá Óla Óla, ganga um bæinn 17. júní með Guðrúnu Frímanns og
éta Brynjuís. Horfa með Einari og Golla á nýstúdenta marsera á miðnætti.
Ganga út á Torfunesbryggjuna í sólskini, blankalogni, horfa á Kaldbakinn,
Hlíðarfjallið, Súlurnar og loks Menntaskólahúsið á brekkubrúninni. Það var
ekki laust við að mér vöknaði um augu. Hlakka til þess að sjá
ykkur öll sem fyrst og alls ekki síðar en á 30 ára afmælinu. Nonni Vald." Hér til hliðar á síðunni er nýr hnappur sem heitir Afmælið. Þar er ný síða um afmælið, með tenglum á Emmu, ræðu Óðins, myndir og fleira. Ég kemst ekki yfir að setja allar þessar myndir inn í einu, þannig að þið verðið bara að fylgjast með síðunni næstu daga. Og Maggi gat ekki stillt sig um að bæta við einni (verulega góðri) sögu af Dána sem er á minningasíðunni.
|
|
|
17. júní 2003 Það verður að segjast eins og er: Þetta fór allt saman fram úr villtustu væntingum. Emma glymur enn í hausnum á manni og hefur greinilega góð áhrif, a.m.k. þarf ekkert parkódín núna..... Simmi lét mig fá disk með 130 myndum sem verður sorterað úr og sett inn næstu daga. Hér að neðan er forsmekkur að því sem koma skal. Eftirminnilegt tilsvar: "Vorum við í dönsku?" (Leifur í heimsókn í gamla skóla.)
|
|
|
Á skólavörðunni 14. júní. |
|
|
Fyrir óvissuferð 15. júní.
|
|
|
13. júní 2003 Jæja. Þá er komið að því. Hátíðahöldin byrja á morgun. Húfan er fundin, hringurinn fægður. Púrtvínið búið. Það er ekki hægt að standa í vefsíðugerð nema hafa púrtvín um hönd. Að minnsta kosti er það reynsla þessa vefstjóra, sem hefur skemmt sér alveg konunglega við vefsíðugerðina undanfarna mánuði og drukkið margar púrtvínsflöskur. Stefnt er að því að birta myndir frá hátíðahöldunum hér á síðunni þegar vefstjóri verður búin að jafna sig (og kaupa meira púrtvín). Þangað til:
|
|
|
12. júní 2003 Það er alltaf að fjölga þeim sem ætla að taka þátt í fjörinu. Síðustu tölur eru 80 stúdentar + 54 makar á hátíðina og 67 stúdentar + 26 makar í óvissuferðina. Er þetta ekki frábært? Bifreiðasmiðir á Akureyri leggja nú nótt við dag að lengja rúturnar sem búið var að leigja fyrir óvissuferðina, svo ekki þurfi að hafa makana á toppnum. (Eða senda þá í sér óvissuferð - væri það ekki alveg brilljant?) Nú eru væntanlega flestir búnir að fá Carmínu í hendurnar og verða að lesa hana fram á rauða nótt, enda spennandi með afbrigðum. Rétt er að láta þess getið að kvikindislegar athugasemdir ritnefndar í formála ber ekki að taka alvarlega, enda fátt skemmtilegra en að lesa það sem fólk með góða ritræpu skrifar. Það er svo bara klaufaskap umbrotsmanns að kenna ef illa gekk að koma texta og myndum heim og saman. Mestöll undirbúningsnefndin leggur af stað norður á morgun. Þar sem óvíst er með tölvupóstsamband og vefsíðuviðhald eftir það er rétt að gefa upp mikilvæg símanúmer ef þarf að ná í einhvern í nefndinni:
Friðjón mun ætla að sýna spilagaldra á bekkjarkvöldinu. Það er nú aldeilis eitthvað að hlakka til!
|
|
|
11. júní 2003 Klukkan 11:16 í morgun fóru 87 Carmínur í póst og stúlkan á pósthúsinu í Skipholti lofaði að þær yrðu bornar út á morgun. Þið sem eigið eftir að borga: ef þið viljið fá Carmínu, gerið þá skil strax. Carmínu var pakkað í umslög í matsal hótelsins hans Friðjóns í morgun. Atgangurinn var slíkur að grandalausir útlendingar sem ætluðu bara að fá sér kaffisopa hrukku öfugir út, enda Friðjón vígalegur með blauta tusku á lofti (ekki að ræða það að sleikja 87 umslög!). Það fréttist í dag að okkur hefði láðst að sækja um skemmtanaleyfi fyrir hátíðinni 16. júní. Úbbs. Nú setjum við allt okkar traust á Dísu sem ætlar að redda málunum.
Sumir ráða sér ekki fyrir tilhlökkun og geta
varla stundað vinnu af þeim sökum lengur. Stúdentshúfan er dregin fram og
skólahringurinn fægður. Menn verða aftur tvítugir, a.m.k. í anda. Minnir á
ljóðlínurnar fleygu: Við skulum öll syngja og verða græn aftur í sólskininu á Akureyri.
|
|
|
10. júní 2003 Æ, æ, Carmína komst ekki í póst í dag. Prentsmiðjan náði ekki að klára hana í tæka tíð til að ná póstinum fyrir klukkan hálf fimm. Þið fáið hana sem sé ekki fyrr en á fimmtudag. Talið er að þetta sé allt Friðjóni að kenna. Frést hefur að hljómsveitin Hver hafi verið að æfa í Mývatnssveit um hvítasunnuna. Ekki tókst þeim víst að spila mikið þótt æft væri stíft. En gerir það eitthvað til? "Málið er ekki að geta heldur gera" voru einkunnarorð pönksins, og þótt Hver muni seint flokkast sem pönksveit þá skulum við hafa þetta í huga þann 16. júní: Hver kemur fram til að skemmta okkur og hafa sjálf gaman af. Það er ekki spurning að það mun takast. Lag Hafþórs heitir "Emma". Þeir sem heyrt hafa telja lag og texta eiga eftir að límast í heila MA-inga á svipaðan hátt og "Steinar í berjamó" og eru lag og texti "Emmu" þó miklum mun margbrotnari.
|
|
|
9. júní 2003 Loksins eru komnar upp myndir frá 20 ára afmælinu sem búið var að lofa. Vonandi fáum við eins gott veður núna og við fengum fyrir 5 árum. Þá var bongóblíða allan tímann. Er annars ekki alltaf bongóblíða á Akureyri um miðjan júní? Þannig er það allavega í minningunni. Fróðleiksmoli: Það eru (eftir því sem best er vitað) níu doktorar í bekknum: fjórir læknar, fjórir líffræðingar, og Árni Daníel heldur einn uppi heiðri hugvísindanna sem doktor í sagnfræði.
|
|
|
8. júní 2003 Nú er tæp vika þar til djammið byrjar og vonandi allir búnir að finna gömlu stúdentshúfuna. Mæting er framar öllum vonum, þátttakan úr bekknum er komin í 78 (+ 53 makar) á hátíðina og 64 (+ 24 makar) í óvissuferðina. Listi yfir þá sem hafa tilkynnt þátttöku er hér. Þeir fáu sem eiga eftir að tilkynna um mætingu (af eða á) eru beðnir að gera það strax. Látið vefstjóra einnig vita ef eitthvað er ekki rétt skráð. Carmína er í prentun og fer í póst á þriðjudag til allra sem hafa greitt 4500-kallinn. Hún ætti því að koma á miðvikudag til ykkar, ef Íslandspóstur stendur sig í stykkinu. (Þið sem búið erlendis og ætlið að koma til Akureyrar fáið Carmínu afhenta þar.) Á endanum náðist, með svívirðilegum persónunjósnum og skipulögðu einelti, að pína persónuupplýsingar út úr öllum nema fjórum, þannig að Carmína 1978-2003 er afar ítarlegt upplýsingarit í ritröðinni Safn til sögu MA. Hátíðin að kvöldi 16. júní er nú skipulögð út í æsar og má lesa allt um hana hér, t.d. matseðil og hvenær miðasala fer fram. Heildarfjöldi hátíðargesta verður eitthvað á sjöunda hundraðið. Hafþór er búinn að semja lag og texta sem er óður júbílanta til MA. Ætlunin er að taka nokkrar léttar æfingar á lagi og texta í fjallgöngunni og óvissuferðinni, en opinber frumflutningur verður á hátíðinni sjálfri. Sibba 6.B hefur tekið að sér að flytja ávarp fyrir hönd 25 ára stúdenta við skólaslit þann 17. júní og afhenda gjöf okkar til skólans. 25 ára stúdentar eru hvattir til að fjölmenna og láta ekki bugast af þriggja daga djammi. Við gátum þetta fyrir 25 árum og við getum það enn! (Vefstjóri minnist þess að á 20 ára stúdentsafmælinu þurfti tvær parkódín til að komast í gang að morgni eftir fyrsta djammkvöldið, bara eina morguninn eftir óvissuferðina, og að morgni 17. júní var heilsan bara fín, takk fyrir, og dugði til að keyra suður með viðkomu á Króknum að sækja börnin.) Nýjustu upplýsingar um óvissuferðina þann 15. júní er að finna hér. Athugið að mæting er kl. 11:30 við Gamla skóla, brottför kl. 12:00 stundvíslega. Munið einnig fjallgöngu og bekkjarpartý þann 14. júní, sjá hér. Fyrir okkur 25 ára stúdenta er planið semsagt svona:
Nýjar myndir frá Sibbu eru komnar á vefinn. Takið sérstaklega eftir spengilegu karlmannskroppunum á síðustu myndinni. Myndir frá 20 ára stúdentsafmælinu eru einnig væntanlegar (því miður engir viðlíka kroppar þar, a.m.k. ekki jafn fáklæddir).
|
|
|
26. maí 2003 Vitið þið hvað margir 25 ára stúdentar ætla að mæta á afmælishátíðahöldin? Það eru hvorki meira né minna en 74 úr bekknum búnir að tilkynna þátttöku í MA-hátíðinni að kvöldi 16. júní (þar af 50 með maka), og 62 eru búnir að tilkynna sig í óvissuferðina (þar af 24 með maka). Samt eru ekki allir búnir að svara enn hvort þeir mæta - og er hér með skorað á þá sem eiga það eftir að tilkynna sig sem fyrst. Þeir 25 ára stúdentar sem vilja eru velkomnir að heimsækja skólann mánudaginn 16. júní kl. 14:00. Tryggvi mun taka á móti okkur og ganga með okkur um skólann og rifja upp gamla tíma. Þorbjörg (6A) sá um að panta þennan tíma fyrir okkur, þökk sé henni. Erla hafði samband frá Noregi, hún er komin í mikið stuð og hafði verið að syngja gömlu menntaskólasöngvana fyrir blásaklausa fjölskyldu sína, en var búin að gleyma helmingnum af textunum (þetta eru langtímaáhrif af óhóflegri Thule-drykkju!). Fyrir hana og aðra gleymna stuðbolta eru nokkrir helstu textarnir sem sungnir voru á Söngsal hér. Svo eru komnar ítarlegri upplýsingar um hátíðina 16. júní hér. Búið er að kaupa gjöf okkar til skólans og dagskrá hátíðarinnar er næstum frágengin. Nú eru aðeins þrjár vikur til stefnu og margir eru farnir að titra af tilhlökkun. Vefstjóri er hins vegar farin að titra af stressi því enn eiga örfáir eftir að skila upplýsingum í Carmínu og við vildum svo gjarnan hafa alla með, en það tekur auðvitað tíma að setja upp og prenta ritið og dreifa því til kaupenda sem bíða spenntir eftir fréttum af síðustu 25 árum í lífi bekkjarsystkinanna. Það er von á einhverjum myndum á vefinn á næstunni, s.s. frá 20 ára afmælinu, og allir sem eiga skemmtilegar myndir frá skólaárunum sem mega fara á vefinn eru enn og aftur minntir á að hafa samband við vefstjóra. Fróðleiksmoli: Samkvæmt vef MA þá eru, fyrir utan Tryggva, ennþá starfandi átta kennarar sem við kvöddum á dimmissio vorið 1978. Þrír þeirra (Valdimar, Sverrir Páll og Þórir) eru 35 ára stúdentar núna, og Tryggvi er 45 ára stúdent.
|
|
|
17. maí 2003 Loksins eru myndirnar frá Magga Óskars komnar upp (sjá einnig skíðaferða-síðuna). Vefstjóri gerir sér grein fyrir því að kvenfólkið hefur beðið í ofvæni eftir kroppamyndunum af 6.U og biðst innilega afsökunar á seinaganginum, sem stafaði aðallega af bilaðri ADSL-tengingu (hún er reyndar enn biluð, en vefstjóri er ekki gift tölvukalli fyrir ekki neitt). Svo eru líka komnar nýjar myndir frá Tobbu (sjá líka Dimmissio-síðuna). Enn bætist í hópinn sem ætlar að taka þátt í hátíðahöldunum. Við þurfum að vita nokkuð nákvæmlega um fjöldann og því eruð þið, sem eigið það eftir, beðin að láta vefstjóra endilega vita sem fyrst hvort þið ætlið að taka þátt í hátíðinni 16. júní og óvissuferðinni 15. júní. Meira en helmingur þeirra sem búsettir eru erlendis ætla að mæta, og eitt hörkutól gerir hlé á sumarfríinu sínu og leggur á sig ferðalag frá Spáni og til baka, bara til að geta verið með. Það verður örugglega þess virði!
|
|
|
11. maí 2003 Undirbúningsnefndin fundaði í vikunni. Það ætlar að verða mjög góð mæting, bæði hjá okkar árgangi og öðrum árgöngum, og stefnir í mikið stuð í Höllinni þann 16. júní. Eins og áður hefur verið ýjað að ætlar hljómsveitin Hver að troða upp og flytja, í tilefni dagsins, nýtt lag og texta eftir Bjarna Hafþór. Geðlæknirinn geðþekki Óli Ævars verður veislustjóri, dyggilega studdur af Friðjóni, Óðinn flytur aðalræðu kvöldsins og Þórunn stjórnar fjöldasöng. Þeir sem ekki hafa enn látið vefstjóra vita um þátttöku í hátíðinni og óvissuferðinni eru vinsamlegast beðnir að gera það sem fyrst. Um tveir þriðju hlutar árgangsins eru búnir að láta vita og ætla næstum allir að mæta á hátíðina, en heldur minni þátttaka er í óvissuferðinni. Það er rétt að taka það fram að makar eru velkomnir með í allt skrallið. Myndirnar af 6.U hálfnöktum í leikfimi eru væntanlegar á vefinn síðar í vikunni. Þeir hafa nú lítið breyst piltarnir, nema hvað einhverjir hafa kannski bætt á sig örfáum kílóum og það er heldur ekki frítt við að þeir hafi verið ívið hárprúðari í þá daga. Og svo er rétt að benda á að hver einasti kjaftur úr 6.X er búinn að skila í Carmínu! Hverjir eru bestir?! Einn úr U-inu og ein úr T-inu eiga eftir að skila, tveir úr B-inu, tvær úr A-inu og tvö úr F-inu. Takið ykkur nú á og sendið inn upplýsingar í hvelli, þá komast þær með. Ef einhverjir eiga eftir að borga þá eru þeir líka minntir á að ganga frá því.
|
|
|
5. maí 2003 Vefstjóra varð heldur betur á í messunni um daginn þegar vísan góða "Illt er að pissa planið á....." var eignuð Jóni Ingvari Jónssyni. Hún er nefnilega eftir annað af höfuðskáldum 1977-árgangsins, Símon Jón Jóhannsson. Óðinn morgunhani benti vefstjóra á þetta í morgun og var Símon samstundis beðinn fyrirgefningar, sem hann veitti af mildi og hógværð, og höfundarnafn hefur verið leiðrétt við vísuna hér neðar á síðunni.
|
|
|
4. maí 2003 Nú er kominn slatti af nýjum sögum á minningasíðuna, greinilegt að það rifjast ýmislegt upp fyrir fólki þegar það les það sem aðrir hafa skrifað. Svo er von á myndum frá Magga Óskars, m.a. af 6.U hálfnöktum í leikfimi og jafnvel sturtu...... Úlla la!
|
|
|
1. maí 2003 Fullt af nýjum myndum frá Jóhönnu Gísla (líka nokkrar á Dimmissio-síðunni og 10 ára-síðunni). Nú eru bestu Carmínu-skilin í X-bekknum, komin yfir 90%. Áfram svona! Enn er tekið við efni í Carmínu (fram að helgi) og þeir síðustu hafa fengið bréf með áminningu um að skila strax, vilji þeir vera með. Þeir sem hugsanlega vilja ekki vera með í Carmínu eða hátíðahöldum eru vinsamlegast beðnir að láta vefstjóra vita svo hætt verði að bögga þá.
|
|
|
29. apríl 2003 Svona getur nú verið gagnlegt að týna hlutum: Vefstjóri var að leita að gömlum prófskírteinum í skrifborðsskúffum sínum og fann þá sér til mikillar furðu (í umslagi með stúdentsprófsskírteininu) sunnudagsblað Þjóðviljans frá 23. apríl 1978, þar sem var skopmynd af ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar á forsíðu. Það var þó ekki ástæðan fyrir því að blaðið hafði verið geymt, heldur baksíðan, en þar var sagt frá starfsviku Menntaskólans á Akureyri og talað við nokkra nemendur sem komu til Reykjavíkur í starfskynningu. Sumir voru greinilega þegar búnir að finna sína hillu í lífinu!
|
|
|
27. apríl 2003 Þá eru fermingar, páskar og svoleiðis vesen afstaðið og hægt að fara snúa sér aftur að því sem máli skiptir: undirbúningi 25 ára stúdentsafmælisins. Lokaútkall vegna Carmínu skilaði góðum árangri og margir tóku við sér, nú hafa um 80% árgangsins skilað og U-bekkurinn er kominn fram úr A-bekknum í skilum, og það sem meira er þá hafa allir U-bekkingar með tölu greitt 4500-kallinn. Fyrirmyndarpiltar, eins og þeir hafa víst alltaf verið. Vinna við uppsetningu Carmínu hefst á næstu dögum, en hér með er skorað á þá sem eiga eftir að skila að gera það nú þegar, svo þeirra upplýsingar komist með. Ritið verður auðvitað því eigulegra sem meiri upplýsingar eru í því, bæði blákaldar staðreyndir og sögur af ýmsu tagi, sannar og lognar. Nýjar myndir frá Helenu eru komnar á vefinn, flestar frá hinni víðfrægu Thule-kappdrykkju hennar og Erlu á Teríunni. Voðalega lítið hefur hins vegar bæst við af minningum. Kannski er Alzheimer um að kenna. Erum við orðin svona gömul? Margir eru búnir að tilkynna þátttöku í hátíðahöldunum, en við viljum endilega fá að vita sem fyrst um fyrirhugaða þátttöku bæði í hátíðinni 16. júní og óvissuferðinni 15. júní. Þið sem eigið eftir að láta vita, vinsamlegast gerið það sem fyrst. Þótt skólaferðalagið okkar hafi ekki verið farið út fyrir landsteinana þá er það þó eitt af því sem flestir nefna sem meðal þess eftirminnilegasta frá skólaárunum - ekki endilega ferðalagið sjálft heldur sem "ferðin sem aldrei var farin", eins og einhver sagði. Eftirminnilegt, hallærislegt, skemmtilegt. Hefðum við nú farið til Dubrovnik eins og til stóð - ætli svona margir hefðu nefnt þá ferð, 25 árum síðar? Annað sem margir nefna er Sjallinn. Nema hvað? Og ætlar virkilega enginn þeirra sem hlut áttu að máli að segja frá atvikinu sem varð kveikjan að þessari vísu (eftir Símon Jón Jóhannsson): Illt er að pissa planið á
|
|
|
11. apríl 2003 Nú er komið að lokaútkalli vegna Carmínu: Allar upplýsingar í Carmínu þurfa að berast vefstjóra fyrir 25. apríl, því það tekur tíma að setja upp og prenta ritið. Drífið nú í að skila, þið sem eigið það eftir. Ef einhver man ekki hvaða upplýsingar við vorum að biðja um, þá má finna formið hér. Annars eru 2/3 hlutar búnir að skila, og þeir sem ekki eru búnir að borga eru að fá gíróseðla þessa dagana. Það stefnir í mjög góða mætingu á hátíðahöldin í sumar og greinilegt að 25 ára stúdentsafmælið er meiri háttar viðburður - ýmsir sem aldrei hafa komið að júbílera eru búnir að boða komu sína. Endilega látið vita um mætingu eins fljótt og hægt er. Þótt seint sé er bæði ljúft og skylt að óska sigurvegurunum í söngkeppni framhaldsskólanna og í Gettu betur til hamingju með sigurinn. Fulltrúi MA sigraði verðskuldað í söngkeppninni (og fulltrúi VMA var frábær líka), en þótt MA hafi ekki gengið eins vel í Gettu betur þá er rétt að benda á að (a) einn af sigurvegurunum úr MR (þessi með hárið) mun vera systursonur Baldurs Friðriks (6U) og Snæbjarnar (eðlisfræðikennara), og (b) dóttir Helenu (6A) var í liði MH sem komst í undanúrslit. Þannig að við getum alveg verið stolt af þessu unga fólki, um leið og við öfundum þau svolítið af öllu félagslífinu í kringum þessar keppnir - af hverju var ekki búið að finna þetta upp þegar við vorum í MA? Það er slæðingur af nýjum sögum á minningasíðunni en því miður hefur ekkert bæst við af myndum síðan síðast. Hér með er lýst eftir bekkjarmyndum (1. des.-myndum) af 6.A, 5.A, 6.B, 5.B, 4.B, og öllum 3. bekkjum nema 3.A. Ef þið lumið á myndum af þessum bekkjum (eða öðrum skemmtilegum myndum) þá hafið samband við vefstjóra.
|
|
|
26. mars 2003 Margir hafa skilað í Carmínu síðan síðasta áminning var send út, og er nú rétt rúmlega helmingur búinn að skila. Haldið svona áfram! Nú er það A-bekkurinn sem er duglegastur, þar eru 12 af 18 búnar að skila. Margir senda stuttar sögur eða sögubrot með og því er margt nýtt á minningasíðunni. Einnig eru nýjar myndir frá Silla í 6.B. Sumir gerast skáldlegir þegar þeir fara að rifja upp liðnar stundir, eins og þetta brot úr bréfi frá Stjána 6.X sýnir:
"..... nú er loks komið að því! Að verða 25 ára stúdent er nánast eins og að deyja. Að það skuli vera svona fjandi
langt síðan? Að upplifa í minningunni öll þessi ár, sem eru liðin, eitt kíló á ári, fáar konur og fullorðin börn, meira að
segja stjúpbörn og stjúpbarnabarn, það hljómar ekki eins og ekkert hafi gerst. Er það? Fjandakornið Nei.
Effektífitetið hefur verið slíkt að mig óraði ekki fyrir því þegar ég kúldraðist í Álfabyggð 12 og diffraði og integreraði
af lífsins sálar kröftum og spilaði kvín á plötuspilara úr plasti. Þann eina sinnar tegundar sem til var þá í heiminum.
Undir rúmi var pappakassi fullur af lagkökum frá ömmu ....."
Það er rétt að minna á að það er mikilvægt að við í nefndinni fáum að vita um fyrirhugaða þátttöku í hátíða-höldunum, bæði óvissuferðinni og MA-hátíðinni þann 16., vegna skipulagningar viðburðanna. Auðvitað geta ekki allir sagt til um það strax hvort þeir mæta, en við biðjum ykkur að láta okkur endilega vita eins fljótt og hægt er hvort þið ætlið að taka þátt eða ekki.
|
|
|
20. mars 2003 Nefndin fundaði í vikunni. Það er að komast mynd á hátíðahöldin og allt gengur vel. Nú verður farið í átak við að innheimta greiðslur vegna gjafa og Carmínu, og einnig verður fólk minnt á að skila í Carmínu. Það er komið fullt af nýjum myndum á vefinn, viðbót frá Óðni og Gulló kom með albúm sem reyndist mikill fjársjóður því þar voru m.a. stúdentsmyndir af öllum bekkjunum, en einnig myndir frá dimmissio, úr skíðaferðum, bekkjarmyndir og myndir frá 1. des. Vegna gistingar á Akureyri þessa miklu djammhelgi sem fyrirhuguð er í sumar er rétt að taka fram að Hótel Edda á heimavistinni verður opnuð sérstaklega fyrir MA-stúdenta þann 15. júní, en annars er opnað fyrir almenning þann 18. júní. Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þetta ættu að hringja í síma 5050910 eða senda tölvupóst á edda@hoteledda.is til að panta herbergi. Munið að taka það fram að það sé fyrir MA-stúdenta. Verðið er sem hér segir: Eins manns herbergi með vaski kr 4900
|
|
|
11. mars 2003 Það eru komnar nýjar myndir frá Buddu á vefinn. Eitthvað hefur líka bæst við af sögum og svo eru komnar frekari upplýsingar um óvissuferðina 15. júní og dagskrána 14. júní. Það verður gaman að rifja upp gamla takta úr bekkjarpartýi í Lóni. Verður ekki örugglega diskómúsík og dansað "bump"? Varðandi MA-hátíðina þann 16. júní þá hefur heyrst hvíslað að hin víðfræga og ógleymanlega hljómsveit Hver sé að hugleiða löngu tímabært kombakk, og jafnvel að lagasmiðurinn ljúfi Bjarni Hafþór sé með eitthvað í pokahorninu. Þessu má enginn missa af! Rúmlega þriðjungur er búinn að skila í Carmínu (þið hin eruð minnt á að skila sem fyrst), og sumir sem voru búnir að skila senda inn sögur seinna. Það er eins og þurfi svolítið að setja sig í stellingar til að rifja upp skemmtileg atvik frá skólaárunum. Kannski rifjast eitthvað upp fyrir ykkur þegar þið lesið það sem aðrir hafa skrifað, eða sjáið skemmtilegar myndir - sendið það þá endilega til vefstjóra.
|
|
|
4. mars 2003 Einhvern tíma hefði maður nú látið segja sér það tvisvar (eða jafnvel þrisvar) að U-bekkurinn væri duglegastur og samviskusamastur í einhverju. En þetta er nú bara staðreynd. Þeir hafa verið duglegastir við að skila inn bæði upplýsingum í Carmínu og sögum til birtingar. Annars er þetta nú að tínast inn smátt og smátt, og gott til þess að vita að ýmislegt aftan úr grárri forneskju er að rifjast upp fyrir fólki. Vonandi fer slíkt vaxandi með hækkandi sól. Sendið fleiri sögur, sannar eða lognar (skv. mottóinu: Hafa skal það sem betur hljómar). Og til hamingju, Óðinn, með nýja morgunþáttinn. Þvílík byrjun!
|
|
|
26. febrúar 2003 Nýtt efni er komið inn á vefinn, bæði myndir, sögur og heilu skáldverkin. Þökk sé höfundum og sendendum. Meira af slíku! Nú hafa 22 skilað í Carmínu og eru þeir sem eiga eftir að skila enn og aftur minntir á að skila til vefstjóra. Sömuleiðis er brýnt að þeir sem ekki hafa greitt 4500-kallinn til Heiðars geri það sem fyrst. Eins og sjá má af bekkjalistunum eru ekki nema 7 af öllum hópnum sem búa erlendis, 5 konur í Noregi og 2 karlmenn í Svíþjóð. Þetta þykir nú ekki mikið og má velta því fyrir sér hvers vegna þessi árgangur er svona heimakær. Sú kenning hefur verið sett fram að þetta sé vegna þess að við fengum ekki að fara til útlanda í skólaferðalag og utanlandsferðin okkar var því farin í Munaðarnes. Við urðum því snemma tortryggin gagnvart útlöndum og eimir greinilega enn eftir af því - þótt margir hafi haldið utan til náms hafa sem sagt flestir skilað sér aftur, og þeir fáu sem erlendis búa eru í næstu nágrannalöndum okkar, einmitt þar sem er einna líkast því sem er í Munaðarnesi (skógur og bjálkakofar). Það er líka eftirtektarvert að af þessum 7 eru 5 úr máladeild, sem segir kannski eitthvað um tungumálakennsluna ef menn treysta sér ekki til að setjast að erlendis nema hafa stúdentspróf úr máladeild..........
|
|
|
16. febrúar 2003 Eins og glöggir menn munu sjá er búið að breyta um lit á heimasíðunni. Ástæðan er sú að við fengum vef MA-stúdenta 1977 til afnota (kærar þakkir fyrir það!) og það stóð ekki til annað en að breyta honum, en notast var við gamla útlitið meðan vefstjóri var að læra nógu vel á FrontPage til að geta breytt vefsíðunum að vild. En nú þykist vefstjóri sem sé vera orðinn þokkalega fær í vefsíðugerð, og þar sem hann hefur verið litgreindur sem "haust" þá urðu haustlitir fyrir valinu þegar nýtt útlit vefsins var hannað. Það er komið mikið af nýjum myndum inn á vefinn. Þeir sem eiga myndir sem mættu fara inn á vefinn eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við vefstjóra. Bekkjarmyndir, myndir teknar á 1. des., myndir úr ferðalögum, partýum, kennslustundum, skólaböllum, ... , allt er þetta vel þegið. Það er líka búið að bæta við nýrri síðu: Minningar (sjá hér til hliðar). Þar er meiningin að birta skemmtilegar sögur og minningar. Sendið vefstjóra endilega sögur sem þið lumið á. Svo eruð þið, stúdentar 1978, minnt á að senda inn Carmínu-upplýsingar og greiða 4500-kallinn sem fyrst (sjá kynningarbréfið).
|
|
|
7. febrúar 2003
Ágætu MA-stúdentar 1978! Þótt það sé eins og þetta hafi gerst í gær þá hefur þó ýmislegt drifið á daga okkar á þessum aldarfjórðungi. Við stefnum að því að hittast öll á Akureyri í vor, skemmta okkur saman og rifja upp gömul kynni – og (minnug þess sem gerðist á 20 ára afmælinu) kannski stofna til nýrra, hver veit? Eins og þeir vita sem mættu á 20 ára afmælið er svo gaman að hitta alla aftur og það er um svo margt að spjalla að ein afmælissamkoma dugar ekki. Tvær duga ekki heldur. Því ætlum við að taka þetta með trukki núna – enda stendur vel á helgi – og hefjast skipulögð hátíðahöld okkar ekki seinna en 14. júní, og standa til morguns 17. júní, eða lengur eins og þrek og úthald duga. Óvitlaust er að hefjast strax handa við líkamlegan og andlegan undirbúning! (Haft er eftir einum lækni í hópnum að slímhúð magans muni þurfa sérstakan undirbúning/aðlögun til að þola fyrirsjáanlega inntöku áfengra drykkja.) Sjálfskipuð undirbúningsnefnd hefur fundað nokkrum sinnum og sett á stofn nokkrar undirnefndir: Veislunefnd sem sér um að skipuleggja aðalhátíðina að kvöldi 16. júní í Íþróttahöllinni, Carmínunefnd sem sér um útgáfu á Carmínu 1978 – 2. bindi, Djammnefnd sem sér um að skipuleggja óvissuferð og annað sértækt djamm 25 ára stúdenta, og Gjafa- og ræðunefnd, sem sér um gjöf okkar til skólans og útvegar þá ræðumenn sem útvega þarf. Á þessari síðu er fyrirhugað að birta upplýsingar um undirbúning hátíðahaldanna, dagskrána eftir því sem hún verður til, bekkjalista, myndir frá skólaárunum og fleira skemmtilegt efni. Fylgist með og skoðið síðuna reglulega! Einnig verða fréttir sendar út í tölvupósti, það er því mikilvægt að við fáum öll netföng. Sendið endilega leiðréttingar ef þið rekist á rangar upplýsingar. Nánari upplýsingar er að finna í kynningarbréfinu, sem vonandi hefur skilað sér til allra. Ef ekki, þá má finna það hér til hliðar á síðunni. Þeir sem vilja koma efni til birtingar á síðunni á framfæri, vinsamlegast hafið samband við Guðrúnu Rögnvaldardóttur 6.X, gudrun@stadlar.is. |